Föstudagsmolar

Föstudagsmolar eru vikulegur pistill sem forstjóri Hrafnistu skrifar með upplýsingum til starfsfólks um það sem er efst á baugi í starfsemi Hrafnistuheimilanna. Öðru hverju eru ýmsir úr stjórnendahópi Hrafnistu fengnir sem gestahöfundar föstudagsmola.
 
 
 
 

Föstudagsmolar 5. janúar 2018 - Pétur Magnússon, forstjóri

Lesa meira...

FÖSTUDAGSMOLAR FORSTJÓRA

Föstudaginn 5. janúar 2018.

 

 

Ágæta samstarfsfólk á Hrafnistuheimilunum,

Gleðilegt ár!

Kærar þakkir fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf á árinu 2017. Jafnframt vil ég senda ykkur sérstakt þakklæti fyrir ykkar framlag til Hrafnistu og aldraðra á liðnu ári.

Ég vona að allir hafi átt ánægjulegar stundir og komi vel undan hátíðunum.

Ég hlakka mikið til að takast á við árið 2018 með ykkur með það að leiðarljósi, eins og áður, að gera góða Hrafnistu ennþá betri!

#Metoo og Hrafnista

Án efa vakti fátt jafnmikla athygli á liðnu ári og svonefnd #Metoo umræða. Hér á landi sem víðar, hefur orðið mikil vakning um hverskonar kynbundið ofbeldi og áreitni undir þessu nafni. Vakningunni er ætlað að draga þessi mál fram í dagsljósið og reyna að breyta menningu samfélaga á þann hátt að kynbundið ofbeldi og áreitni verði ekki lengur liðin. Ýmsir hópar kvenna, til dæmis úr heilbrigðisstarfsstéttum hér á landi, hafa komið fram með dæmi úr sínu umhverfi.

Við hér á Hrafnistu höfum fylgst með þessari umræðu vökulum augum og var meðal annars farið yfir málin á fundi Framkvæmdaráðs Hrafnistu á dögunum. Vonandi þarf ekki að taka fram að hvers kyns kynbundið ofbeldi er ekki liðið á Hrafnistuheimilunum, hvort sem gerandinn er karl eða kona. Að því sögðu þurfum við samt að hafa í huga að gera greinarmun á bakgrunni geranda ef slík dæmi koma upp. Allir okkar skjólstæðingar búa hér á heimilum Hrafnistu vegna dapurs heilsufars og eru andleg veikindi að hrjá stóran hluta hópsins, þó með mismiklum hætti sé. Það þarf því sýna mikla tillitssemi og nærgætni í þeim málum sem tengjast íbúum okkar.

Varðandi hvers kyns ofbeldi skal minnt á ábendingakerfi Hrafnistu, en sérstök nefnd, atvikanefnd Hrafnistu, tekur mál að þessu tagi til umfjöllunar hér innanhúss samkvæmt verkferlum þar um.

Áhugaverður pistil um flutning á hjúkrunarheimili

Á dögunum rakst ég á áhugaverðan pistil á sunnlenska fréttavefnum dfs.is. Þar fjalla tveir deildarstjórar, í öldrunarmálum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, um flutning á hjúkrunarheimili. Minnt er á, að við flutning á hjúkrunarheimili verða mikil tímamót í lífi aldraðra einstaklinga og má segja að þau flokkist undir meiriháttar lífsviðburði hjá flestum.Við þekkjum öll að „fyrir aðstandendur reynist flutningur ástvinar á hjúkrunarheimili oft erfiður, sumir aðstandendur upplifa ákveðinn létti þegar hinum aldraða býðst pláss en oft upplifa þeir einnig sektarkennd og óöryggi yfir nýjum og breyttum aðstæðum“, svo vitnað sé beint í pistilinn. Er þetta ágætis hugvekja um þessi mál. Ef þið viljið skoða meira má finna pistilinn á meðfylgjandi slóð:

http://www.dfs.is/2017/12/29/flutningur-a-hjukrunarheimili/

Starfsafmæli í nóvember

Í nóvember síðast liðnum áttu nokkrir úr okkar glæsta starfsmannahópi formleg starfsafmæli hér á Hrafnistu. Þetta eru:

3 ára starfsafmæli: Í Reykjavík eru það Anna Garbarczyk, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir og Ragnheiður Guðmundsdóttir á Lækjartorgi, Piotr Stefan Kopa í ræstingu, Erla Gyða Hermannsdóttir og Ellen Apale Hermosilla á Vitatorgi og Hjördís Lilja Sveinsdóttir, Florevi Abaygar, Chanariya Svanhvít Prompradit og Vera Hjördís Matsdóttir á Sólteig/Mánateig.

Í Hafnarfirði eru það Sigríður H. Halldórsdóttir og Ragnheiður Jónsdóttir á Báruhrauni og Ólöf Ýr Sigurjónsdóttir á Ölduhrauni. Linda Rut Svavarsdóttir í Kópavogi og Erlendur Guðnason húsvörður í Reykjanesbæ.

5 ára starfsafmæli: Katrín Heiða Jónsdóttir, íþróttakennari í Kópavogi og Garðabæ.

10 ára starfsafmæli: Guðbjörg Hassing í félagsstarfi og Ragnheiður Kristjánsdóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar í Reykjavík og Monique Vala Körner Ólafsson á Ölduhrauni í Hafnarfirði.

15 ára starfsafmæli: Jóna Ósk  Ásgeirsdóttir aðstoðardeildarstjóri Miklatorgs í Reykjavík.

Hjartanlega til hamingju öll og hjartans þakkir fyrir tryggðina við Hrafnistu!

 

Góða helgi!

Bestu kveðjur,

Pétur

Síða 208 af 330

Til baka takki