Fréttasafn

Nýr aðstoðarhjúkrunarstjóri gæðamála á Hrafnistu Skógarbæ

Lesa meira...

 

Rebekka Björg Örvar hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin aðstoðarhjúkrunarstjóri gæðamála á Hrafnistu Skógarbæ frá 1. febrúar 2020. Rebekka Björg útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HÍ árið 2014 og starfaði eftir útskrift á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri og síðan sem yfirhjúkrunarfræðingur á HVE Ólafsvík. Haustið 2015 hóf hún störf á Hrafnistu í Boðaþingi og starfaði þar sem hjúkrunarfræðingur, aðstoðardeildarstjóri og deildarstjóri til vorsins 2018. Rebekka hefur starfað á Læknastöðinni Glæsibæ, miðstöð meltingalækninga frá því í apríl 2018.

 

Við bjóðum Rebekku hjartanlega velkomna í stjórnendahóp Hrafnistu.

 

Lesa meira...

Laufey Sigmarsdóttir tekur við stöðu deildarstjóra dagdvalar á Hrafnistu Hraunvangi

Laufey Sigrún Sigmarsdóttir
Lesa meira...

Laufey Sigrún Sigmarsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra dagdvalar Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði, á meðan Alma Ýr Þorbergsdóttir fer í fæðingarorlof.

Laufey útskrifaðist sem sjúkraliði frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 2011, hún hóf störf á Hrafnistu árið 2014.

Við bjóðum Laufeyju hjartanlega velkomna í stjórnendahóp Hrafnistu.

 

Lesa meira...

Vegna umfjöllunar um sýkingar á Hrafnistu Hraunvangi

default
Lesa meira...

 

Eins og margir vita þá hafa nokkrir íbúar og starfsmenn Hrafnistu í Hraunvangi verið að veikjast síðustu daga, flestir með niðurgang og/eða uppköst.

Það virðist vera orðið nokkuð árviss viðburður að magapest leggist á landsmenn á þessum árstíma og eru hjúkrunarheimilin alls ekki undanskilin enda margir sem eiga leið um og nándin er mikil og því er smitleið auðveld. Þegar upp kemur grunur um Noro-veirusýkingu, eða aðra smitsjúkdóma, virkjum við eins fljótt og mögulegt er sýkingavarnaráætlun Hrafnistu. Það ferli er undir markvissri stjórn sýkingavarnastjóra Hrafnistuheimilanna og er markmiðið að reyna að draga sem fyrst úr útbreiðslu sýkingar.

Það vekur jafnan athygli þegar upp kemur sýking á stórri heilbrigðisstofun eins og Hrafnistuheimilunum og því fáum við oft umfjöllun í fjölmiðlum þegar það gerist.

Mikilvægast af öllu er að allir hjálpist að og fylgi sýkingavarnaráætlun svo þetta gangi sem fyrst yfir.

Við viljum nota tækifærið og hrósa starfsfólki fyrir skjót og markviss vinnubrögð í þessu máli og íbúum og aðstandendum þeirra fyrir skilninginn. Það er alltaf álag þegar svona pest er í gangi og ekki síður þar sem margir starfsmenn eru einnig frá vegna veikinda.

Vonandi fer starfsemin sem fyrst í eðlilegan farveg og eigum við von á að það gerist innan fárra daga.

 

Pétur Magnússon, forstjóri

Árdís Hulda Eiríksdóttir, forstöðumaður

 

Lesa meira...

Allt um heilabilun - nýtt app

Lesa meira...

Alzheimersamtökin hafa nýlega þýtt og staðfært nýtt app sem fólk er hvatt til að nálgast og nýta sér til að fræðast um heilabilun.

Höfundaréttur appsins „Allt um heilabilun“ er í eigu Nationalt Videncenter for Demens. Fyrsta útgáfan fór í loftið 2012 og fengu Alzheimersamtökin á Íslandi leyfi til að þýða og staðfæra þriðju og nýjustu útgáfuna. Verkefnið var styrkt af velunnurum samtakanna meðal annars Oddfellowreglunni. Hægt er að hlaða niður appinu í „Play Store“ eða „App Store“ undir heitinu Heilabilun.

Með aldrinum eykst hættan á því að fá heilabilunarsjúkdóm. Einstaklingar með heilabilun breytast og verða smám saman verr í stakk búnir til að annast sjálfa sig og því er einnig hætta á því að aðrir sjúkdómar komi fram. Heilabilunarsjúkdómur gerir það erfiðara fyrir einstaklinginn að tjá sig um líkamleg einkenni, alveg eins og heilabilun hefur í miklum mæli áhrif á atferli einstaklingsins og þar með samvinnu við aðra um dagleg verkefni umönnunar.

Því er mikilvægt fyrir þá sem vinna við hjúkrun og umönnun að þeir hafi til að bera þekkingu á heilabilun. Í daglegum samskiptum við íbúa, notendur eða sjúklinga getur þú tekið eftir ýmsu til að tryggja rétta umönnun og meðferð einstaklingsins. Það er bæði mikilvægt að vera vakandi fyrir því hvort heilabilun er að þróast hjá einstaklingnum og hafa auga með öðrum einkennum sjúkdóma og breytinga í atferli hjá einstaklingum með heilabilun.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Alzheimersamtakanna - www.alzheimer.is  Facebook síða samtakanna er https://www.facebook.com/alzheimersamtokin/

 

Lesa meira...

 

Lesa meira...

Nýr aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Sólteig/Mánateig Hrafnistu Laugarási

Lesa meira...

 

Guðrún Birna Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri á  Sólteig/Mánateig Hrafnistu Laugarási frá 1. nóvember.  Guðrún Birna útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HÍ í júní 2019, hún er einnig með BS í líffræði og nam líf- og læknavísindi á meistarastigi við sama skóla. Hún hefur starfað á Sólteig/Mánateig með hléum frá því í júní árið 2008, fyrst í aðhlynningu, svo sem hjúkrunarnemi og nú síðast sem hjúkrunarfræðingur.

Við óskum Guðrúnu Birnu til innilega hamingju með stöðuna.

 

Lesa meira...

Sólveig Sigurðardóttir söng í helgistund á Hrafnistu Laugarási

Lesa meira...

Söngkonan Sólveig Sigurðardóttir söng eins og engill í helgistundinni á Hrafnistu Laugarási síðastliðinn miðvikudag. Heimilisfólkið hreyfst af fallegum söng, þegar hún söng Ave María eftir Gomez og fallega lagið Friðarins Guð eftir Árna Thorsteinsson tónskáld. Sólveig er komin af tónlistarfólki og spilaði móðir hennar Kristín Jóhannesdóttir organisti undir á flygilinn.

Sólveig er menntuð í klassískum söng og hefur fjölbreytta reynslu í tónlistinni, kennir söng og er kórstjóri. Einnig spilar hún á píanó, orgel og óbó.

 

Lesa meira...

Framkvæmdir við nýtt eldhús Hrafnistu Laugarási ganga vel

Lesa meira...

Framkvæmdir við nýtt eldhús Hrafnistu í Laugarási ganga samkvæmt áætlun og er stefnt að því að hefja fulla starfsemi um miðjan nóvember. Eldhúsið verður án efa eitt af þeim glæsilegustu og fullkomnustu á landinu. Búið er að setja epoxy á gólf og veggi og unnið er að uppsetningu á loftræstingu og háfum, ásamt öðrum tækjum. Í hádeginu í gær var iðnaðarmönnunum, sem vinna hörðum höndum við uppsetningu tækja og við annan frágang, boðið í hádegismat. Boðið var upp á þjóðarrétt Hrafnistu, kótilettur í raspi með öllu tilheyrandi. 

 

Lesa meira...

Nýr aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Hrafnistu Sléttuvegi frá 2. janúar 2020

Lesa meira...

 

Sigrún Helgadóttir hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri á Hrafnistu Sléttuvegi. Hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur B.sc. frá Háskóla Íslands árið 2018 og hefur starfað á Hrafnistu í Laugarási síðan 2014. Auk þess er Sigrún með BA gráðu í félagsráðgjöf frá HÍ síðan 2010 og starfaði í mörg ár á sambýli fyrir fatlaða ásamt því að vinna í félagsþjónustu fyrir aldraða.

Sigrún mun hefja störf 2. janúar 2020

 

Lesa meira...

Dýrfinna Hansdóttir 15 ára starfsafmæli á Hrafnistu

Lesa meira...

 

Dýrfinna Hansdóttir, sjúkraliði á Miklatorgi-Engey Hrafnistu Laugarási í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.

 

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri:  Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Dýrfinna, Guðlaug Helga Helgadóttir aðstoðardeildarstjóri á Miklatorgi-Engey og Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Laugarási. 

 

 

Lesa meira...

Síða 60 af 175

Til baka takki