Dýrfinna Hansdóttir, sjúkraliði á Miklatorgi-Engey Hrafnistu Laugarási í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Dýrfinna, Guðlaug Helga Helgadóttir aðstoðardeildarstjóri á Miklatorgi-Engey og Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Laugarási.