Þessa dagana er hver sólarstund nýtt til að vera úti og í gær var söngstundin á Hrafnistu Hraunvangi færð út í góða veðrið. Böðvar spilaði á harmonikkuna og fólkið söng með. Eftir að vera búin að syngja nokkur lög bauð Hrafnista öllum upp á ís. Yndisleg stund og vonandi eiga sólardagarnir eftir að verða enn fleiri í sumar.