Inga Guðrún Sveinsdóttir, iðjuþjálfi, hefur verið ráðin sem aðstoðardeildarstjóri iðjuþjálfunar á Hrafnistu í Reykjavík frá 1. janúar 2018. Inga Guðrún hefur starfað sem iðjuþjálfi á Hrafnistu í Reykjavík frá því sumarið 2012, fyrir utan árs leyfi. Þann tíma starfaði hún hjá Janusi starfsendurhæfingu.
Inga Guðrún útskrifaðist með BS - próf í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri í júní 2012. Hún er einnig menntaður sjúkraliði og hefur starfað í heilbrigðiskerfinu í Danmörku og á Íslandi. Má þar meðal annars nefna á LSH, sem aðstoðarmaður iðjuþjálfa á Landakoti, hópstjóri á Sjálfsbjargarheimilinu og við dagþjálfun í Hlíðabæ. Hún hefur sótt fjölda námskeiða sem lúta m.a. að öldrun og þjónustu við einstaklinga sem glíma við heilabilunarsjúkdóma.