Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Púttmót haldið á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 29. júní sl.

Fimmtudaginn 29. júní síðastliðinn var haldið hið árlega púttmót Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Í þetta sinn voru Hafnfirðingarnir gestgjafar og er óhætt er að segja að hrollur hafi farið um þátttakendur áður en mótið var sett því töluverð rigning var fyrr um daginn. Þegar svo búið var að setja púttmótið lét sólin ekki á sér standa og hjálpaði til við að gera daginn ennþá ánægjulegri fyrir þátttakendur.

Skipulagning var til fyrirmyndar og Reykvíkingar þakka  kærlega fyrir sig.

 

Úrslitin á mótinu urðu þessi:

Karlar

Erlendur Þórðarson HR 1. sæti

Friðrik Hermannsson HH 2. sæti

Ragnar Jónasson HH 3. sæti

 

Konur

Vilborg Brynjólfsdóttir HR 1. sæti

Dýrleif Jónsdóttir HR 2. sæti

Erla Björgvinsdóttir HR 3. sæti

 

Steinunn Leifsdóttir, íþróttakennari á Hrafnistu í Reykjavík. 

 

Meðfylgjandi myndir eru frá mótinu.

 

  • Til baka takki

    Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
    Samþykkja kökur