Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Steinunn Þórðardóttir sérfræðingur í öldurnarlækningum ráðin til Hrafnistu

b_250_250_16777215_00_images_frettir_2023_Intro_steinunn-rardttir.jpeg

Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunar- og lyflækningum hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá Hrafnistu frá og með 1. nóvember. 

Steinunn hefur undanfarin fimm ár gegnt stöðu yfirlæknis heilabilunareiningar Landspítala ásamt því að vera formaður Læknafélags Íslands undanfarin ár en því starfi mun hún sinna áfram samhliða starfi á Hrafnistu. Steinunn er jafnframt, svo vitað sé, fyrsti öldrunarlæknirinn með sérþekkingu á heilabilunarsjúkdómum sem ráðinn hefur verið til starfa á hjúkrunarheimili á Íslandi. Ljóst er að hún mun koma með dýrmæta viðbótarþekkingu til Hrafnistu og mun koma að því að efla enn frekar þá þjónustu sem veitt er íbúum og öðrum þjónustuþegum. Hrafnista hefur átt í mjög góðu samstarfi við Heilsuvernd sem þjónustar heimilin með læknisþjónustu og mun það samstarf halda áfram í óbreyttu formi.

Framkvæmdastjóri lækninga mun verða hluti að framkvæmdaráði Hrafnistu og erum við sannfærð um að þessi spennandi nýjung í stjórnendahópi Hrafnistu muni efla enn frekar þá faglegu og öflugu þjónustu sem Hrafnistuheimilin veita nú þegar og gera þeim enn betur kleift að viðhalda því markmiði að vera ávallt leiðandi í þjónustu við aldraða hér á landi.

 

 

 

 

 

Til baka takki

Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
Samþykkja kökur