Í gær voru haldnir stórtónleikar á Hrafnistu í Reykjavík þegar Kartrín Halldóra Sigurðardóttir, leik- og söngkona kom í heimsókn og söng fyrir vel yfir 200 manns sem skemmtu sér vel á tónleikunum í troðfullum sal í Skálafelli. Katrín hefur slegið í gegn í hlutverki Ellý Vilhjálms í samnefndu leikriti í Borgarleikhúsinu þar sem yfir 170 sýningar hafa verið sýndar og ekkert lát er á vinsældum þess.