Fréttasafn

Nilanka I. Dewage 20 ára starfsafmæli á Hrafnistu

 

Nilanka I. Dewage, starfsmaður í býtibúri á Ölduhrauni Hrafnistu Hraunvagi,  hefur starfað á Hrafnistu í 20 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.

Nilanka fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.

Á myndinni eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi, Nilanka, Hrönn Önundardóttir hjúkrunardeildarstjóri á Ölduhrauni og María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu. 

 

 

Lesa meira...

Herða þarf á heimsóknarreglum Hrafnistuheimilanna frá og með 29. desember 2021

 

Kæru íbúar og aðstandendur.

Fréttir síðastliðinna daga sýna að Covid-faraldurinn er í mjög miklum vexti og ekkert lát er á aukningu í smitum.

Neyðarstjórn Hrafnistu fundaði um stöðu mála í dag. Því miður er ljóst að nú þarf að grípa til harðari takmarkana tengt heimsóknum til íbúa á Hrafnistuheimilin. Mikilvægt er að hægt sé að halda uppi þjónustu við íbúana og draga eins og hægt er úr líkum á að smit berist inn á heimilin.

Reglur um heimsóknir á Hrafnistu sem taka gildi miðvikudaginn 29. desember 2021

  • Tveir gestir hafa leyfi til að heimsækja íbúa hvern dag.
  • Aðstandendur og gestir á aldrinum 0-30 ára– Eru beðnir um að koma ekki í heimsókn. Mjög mörg smit eru að greinast í þessum aldurshópi og margir hverjir í hópnum eru ekki bólusettir og því mun meiri líkur á að þeir smiti aðra.
  • Grímuskylda – ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin. EKKI er heimilt að taka grímuna niður inn á herbergi íbúa. Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.
  • Virða þarf 2ja metra regluna, en hún er aftur komin í gildi. Forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  • Ekki er heimilt að nýta setustofur og borðstofur eininga/deilda til heimsókna né önnur alrými á heimilunum s.s. borðsali.
  • Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu og einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir.
  • Mikilvægt er að hafa í hugaað sem fæstir séu í þeim boðum sem íbúar heimilanna sækja utan þeirra (lög segja að hámarki 20 einstaklingar (börn eru þar meðtalin) sem gildir fyrir frískt fólk). Neyðarstjórnin biðlar til íbúa, aðstandenda og annarra gesta að fara ekki í stærri mannfagnaði eða aðrar samkomur með íbúa.
  • Neyðarstjórnin hvetur aðstandendurtil að nýta hraðprófáður en farið er með íbúa í mannfagnaði eða aðrar samkomur og eins áður en þeir koma í heimsóknir á heimilin.
  • Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis – Þeim er heimilt komið í heimsókn eftir að hafa farið í skimun á landamærum og niðurstaða úr skimun er neikvæð ásamt því að þeir séu með öllu einkennalausir. Mikilvægt er samt að hafa samráð við stjórnendur deilda.
  • Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa). 
  • Undanþága frá reglum um heimsóknir hverju sinn, er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.

Hátíðarmatur um áramót

Þar sem ekki er heimilt fyrir aðstandendur að nýta sameiginleg rými á deildum/heimilum þá er því miður ekki hægt að bjóða aðstandendum að borða með íbúum í borðsölum nema í sérstökum undantekningatilfellum.

Mikilvægt er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt hátíðarkvöldverður sé ekki endilega snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg og þið getið skapað ykkar eigin hátíðarstund með ættingja ykkar inn á herbergi íbúa.

Alls ekki koma í heimsókn ef:
a. Þú ert í sóttkví eða smitgát
b. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
c. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
d. Þú ert með COVID-19 lík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, uppköst o.fl.).
e. Þú ert með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.

Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.  

 

Kær jólakveðja,

Neyðarstjórn Hrafnistu

 

 

Lesa meira...

Skilaboð til íbúa og aðstandenda Hrafnistuheimilanna 23. desember 2021

Kæru íbúar og aðstandendur.

Því miður er ljóst að Covid - faraldurinn er í örum vexti þessa dagana. Neyðarstjórn Hrafnistu fundaði um stöðu mála í gær. Á fundinum var tekin sú ákvörðun að breyta ekki þeim heimsóknarreglum sem sendar voru út fyrir stuttu tengt jólum og áramótum.

Það er samt mikilvægt að hafa í huga að bylgja faraldursins núna er borin uppi af yngri aldurshópum samfélagsins þ.e. börnum á yngri stigum grunnskóla  (6 - 12 ára) og ungu fólki (18 – 30 ára). Neyðarstjórnin biðlar því til ykkar allra að hafa þetta í huga og:

  • Takmarka heimsóknir þessa aldurshóps eins og hægt er.
  • Að sem fæstir séu í þeim boðum sem íbúar heimilanna sækja utan þeirra (lög segja að hámarki 20 einstaklingar (börn eru þar meðtalin) sem gildir fyrir frískt fólk).

 

Kær jólakveðja,

Neyðarstjórn Hrafnistu

 

Til nánari glöggvunar koma hér fyrir neðan þær reglur sem eru í gildi og hafa áður verið sendar út:

Grímuskylda – ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin. Heimilt er að taka grímuna niður inn á herbergi íbúa. Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.

Ekki er heimilt að nýta setustofur og borðstofur eininga/deilda til heimsókna né önnur alrými á heimilunum s.s. borðsali.

Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu og einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir. Neyðarstjórnin biðlar þó til íbúa, aðstandenda og annarra gesta að fara ekki í stærri mannfagnaði eða aðrar samkomur með íbúa.

Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis – Þeim er heimilt komið í heimsókn eftir að hafa farið í skimun á landamærum og niðurstaða úr skimun er neikvæð ásamt því að þeir séu með öllu einkennalausir. Mikilvægt er samt að hafa samráð við stjórnendur deilda.

Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa). 

Undanþága frá reglum um heimsóknir hverju sinn, er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.

 

Hátíðarmatur um jól og áramót

 

Þar sem ekki er heimilt fyrir aðstandendur að nýta sameiginleg rými á deildum/heimilum þá er því miður ekki hægt að bjóða aðstandendum að borða með íbúum í borðsölum nema í sérstökum undantekningatilfellum.

Ef aðstæður leyfa er sjálfsagt að íbúi fari út af heimilinu og borði með ástvinum sínum um hátíðarnar.

Mikilvægt er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt hátíðarkvöldverður á aðfangadagskvöld sé ekki endilega snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg og þið getið skapað ykkar eigin hátíðar- og jólastund með ættingja ykkar inn á herbergi íbúa og opnað jólapakka, hlusta á jólatónlist og notið hátíðleikans.

Alls ekki koma í heimsókn ef:

a. Þú ert í sóttkví eða smitgát.

b. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.

c. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.

d. Þú ert með COVID-19 lík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, uppköst o.fl.).

e. Þú ert með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.

 

Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.  

 

Lesa meira...

Jólakveðja frá stjórn Sjómannadagsráðs og stjórnendum Hrafnistuheimilanna

 

Stjórn Sjómannadagsráðs og stjórnendur Hrafnistuheimilanna senda heimilisfólki og aðstandendum sínar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Með þakklæti fyrir góða samvinnu og samstarf á árinu sem er að líða.

Stjórn og stjórnendur þakkar starfsfólki Hrafnistu kærlega fyrir vel unnin störf á árinu og sendir þeim sínar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.  

 

Ljósmynd: Jón Önfjörð Arnarsson.

 

 

Lesa meira...

Iðnaðarmenn fasteignadeildar færa matreiðslumönnum á Hrafnistu viðurkenningu

 

Jónas Hilmarsson afhenti á dögunum matreiðslumönnum í eldhúsinu á Hrafnistu í Laugarási viðurkenningu fyrir hönd iðnaðarmanna í fasteignadeildinni „fyrir frábæra þjónustu á síðasta ári og fyrir allt sem þeir hafa gert fyrir okkur iðnaðarmennina“ eins og segir í tilkynningu.  

Meðfylgjandi mynd er frá afhendingunni. Frá vinstri eru þeir Atli Þór Erlendsson, Kristján Björn Haraldsson, Ólafur Haukur Magnússon, Jónas og Heimir Einarsson.

 

Lesa meira...

Jól og áramót á Hrafnistu

Kæru íbúar og aðstandendur,

Nú þegar jólin nálgast vill neyðarstjórn Hrafnistu upplýsa íbúa og aðstandendur þeirra að núverandi heimsóknarreglur gilda áfram, að öllu óbreyttu, fram yfir jól og áramót. Þær reglur sem eru í gildi eru eftirfarandi:

-Grímuskylda – ALLIR gestir þurfa að bera andlitsgrímu við komu á heimilin. Heimilt er að taka grímuna niður inn á herbergi íbúa. Ekki er heimilt að vera með margnota grímur.

-Ekki er heimilt að nýta setustofur og borðstofur eininga/deilda til heimsókna né önnur alrými á heimilunum s.s. borðsali.

-Íbúum er áfram heimilt að fara út í garð og í gönguferðir með sínum nánustu og einnig er heimilt að fara með íbúa út af heimilinu í bílferðir eða heimsóknir. Neyðarstjórnin biðlar þó til íbúa, aðstandenda og annarra gesta að fara ekki í stærri mannfagnaði eða aðrar samkomur með íbúa.

-Fullbólusettir aðstandendur sem dvalið hafa erlendis – Þeim er heimilt komið í heimsókn eftir að hafa farið í skimun á landamærum og niðurstaða úr skimun er neikvæð ásamt því að þeir séu með öllu einkennalausir. Mikilvægt er samt að hafa samráð við stjórnendur deilda.

-Óbólusettir aðstandendur sem eru að koma erlendis frá mega ekki koma í heimsókn inn á heimilin fyrr en 14 dagar eru liðnir frá heimkomu (undanþágu er hægt að fá í samráði við stjórnendur deildar ef um skyndileg veikindi/lífslokameðferð er að ræða hjá íbúa). 

-Undanþága frá reglum um heimsóknir hverju sinn, er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra deildar.

 

Hátíðarmatur um jól og áramót
Þar sem ekki er heimilt fyrir aðstandendur að nýta sameiginleg rými á deildum/heimilum þá er því miður ekki hægt að bjóða aðstandendum að borða með íbúum í borðsölum. Ef aðstæður leyfa er sjálfsagt að íbúi fari út af heimilinu og borði með ástvinum sínum um hátíðarnar.

Mikilvægt er að hafa í huga að njóta samveru, hátíðleika og væntumþykju þótt hátíðarkvöldverður á aðfangadagskvöld sé ekki endilega snæddur saman. Samveran sjálf er svo mikilvæg og þið getið skapað ykkar eigin hátíðar- og jólastund með ættingja ykkar inn á herbergi íbúa og opnað jólapakka, hlusta á jólatónlist og notið hátíðleikans.

 

Alls ekki koma í heimsókn ef: 

  1. Þú ert í sóttkví eða smitgát
  2. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
  3. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift. 
  4. Þú ert með COVID-19 lík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang, uppköst o.fl.).
  5. Þú ert með einhver önnur almenn einkenni um veikindi.

Munið að sýna ýtrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Við þurfum öll að hafa í huga persónulegar sýkingavarnir s.s. handþvott og handsprittun.  

 

Kær jólakveðja,

Neyðarstjórn Hrafnistu

 

 

Lesa meira...

Starfsfólk á Sjávar- og Ægishrauni með árlegt jólakaffi

 

Starfsfólk á Sjávar- og Ægishrauni, Hrafnistu Hraunvangi, bauð íbúum á deildinni í árlegt jólakaffi þann 7. desember sl. Samkvæmt venju sá starfsfólk um að útbúa allar veitingar, tertur, fagurskreyttar bollakökur, heita rétti, flatkökur með hangikjöti svo eitthvað sé nefnt. Hrafnista bauð að venju öllum upp á heitt súkkulaði með rjóma. Jólalegra verður það nú ekki.

Að þessu sinni sá Árni Matthías um að spila nokkur jólalög á klassískan gítar og Bryndís kom og spilaði á gítar og söng jólalög. Að sögn starfsmanna er þetta einn af skemmtilegustu dögunum í vinnunni á hverju ári.  

Allir nutu samverunnar sem lauk með bros á vör viðstaddra og jólablik í augum.

 

Lesa meira...

Rauður dagur á Hrafnistuheimilunum, jólamatur og jólagjafir til starfsmanna

Jólaundirbúningur er í hávegum hafður þessa dagana á Hrafnistuheimilunum. Búið er að setja upp jólaskreytingar á öllum deildum og undanfarna daga hafa íbúar og starfsfólk m.a. dundað sér við jólabakstur. 

Íbúum og starfsfólki á öllum Hrafnistuheimilunum var boðið í jólamat í hádeginu í gær. Starfsfólk fékk afhentar jólagjafir frá Hrafnistu og allir voru hvattir til að klæðast rauðu í tilefni dagsins.

Það er ávallt mikið líf og fjör á þessum degi og allir komast í mikið jólaskap.

Meðfygjandi myndir tala sínu máli en þær voru teknar af starfsfólki Hrafnistu í gær á Hrafnistu Nesvöllum, Laugarási, Ísafold í Garðabæ og á Hrafnistu Sléttuvegi.

 

Lesa meira...

Síða 20 af 175

Til baka takki