
Ragnhildur Reynisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Gæða- og þróunarsviðs hjá Hrafnistu.
Ragnhildur býr yfir 20 ára reynslu úr íslenskum heilbrigðis- og lyfjageira þar sem hún hefur starfað sem stjórnandi, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og er með MBA nám til viðbótar heilbrigðismenntun.
Frá árinu 2011 hefur hún gegnt starfi markaðsstjóra hjá Vistor, þar sem markviss gæðastjórnun og öflugir verkferlar eru mikilvæg forsenda starfseminnar. Samhliða því starfi hefur hún sinnt hlutverki ljósmóður og setið í stjórn Frumtaka nú síðast sem stjórnarformaður.
Við hlökkum til að njóta krafta og reynslu Ragnhildar í áframhaldandi þróun og eflingu starfsemi Hrafnistu og bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.
