Brynja Þórdís Þorbergsdóttir, sjúkraliði á Ölduhrauni, Hrafnistu Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Hrönn Önundardóttir deildarstjóri á Ölduhrauni, Brynja og Pétur Magnússon forstjóri.