Guðný Albertsdóttir, sjúkraliði á Bylgjuhrauni, Hrafnistu Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 25 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Eyrún Pétursdóttir deildarstjóri á Bylgjuhrauni og Pétur Magnússon forstjóri.