Guðlaug P. Sigurbjörnsdóttir, starfsmaður á Vitatorgi á Hrafnistu í Reykjavík var nýlega heiðruð að stjórnendum Hrafnistu. Saga Guðlaugar sem starfsmanns Hrafnistu er nánast einstök þar sem síðar á þessu ári hefur Guðlaug starfað fyrir Hrafnistu í 50 ár. Guðlaug hóf störf á skrifstofum Hrafnistu 1967 og starfaði í fullu starfi fyrstu árin. Síðustu árin hafa íbúar á Vitatorgi fengið að njóta starfskrafta hennar.
50 ára starfsafmæli Guðlaugar verður svo fagnað síðar á árinu með pomp og prakt.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík, Guðlaug og Anna María Friðriksdóttir deildarstjóri á Vitatorgi