Bryndís Guðmundsdóttir, deildarstjóri sjúkraþjálfunar á Hrafnistu Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 30 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Bryndís og Pétur Magnússon forstjóri.