Cecilia Cruz Castro, starfsmaður í borðsal Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri, Cecilia og Sigrún Kjærnested verkstjóri í borðsal.