Alzheimer kaffi verður haldið fimmtudaginn 5. janúar nk. kl. 17:00 að Hæðargarði 31.
Ólína Kristín Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Maríuhúss mun fjalla um framúrskarandi rannsóknir og umönnun fólks með heilabilun.
Alzheimerkaffi er fyrir fólk með alzheimer eða aðra minnissjúkdóma og aðstandendur þeirra
Markmiðið er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, opna umræðuna um erfiðleika fólks með þennan sjúkdóm og gefa þeim og aðstandendum kost á að hitta aðra sem glíma við svipaðan vanda.
Einnig að veita ráðgjöf, fræðslu, spjalla, syngja, gleðjast og eiga gæðastundir.
Aðgangseyrir 500 kr.
Allir velkomnir!