Sigríður Rós Jónatansdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri Hrafnistu Nesvöllum. Sigríður Rós, sem er fædd 1980, hefur starfað við aðhlynningu frá árinu 2000 – 2005 og sem sjúkraliði á Garðvangi sem þá var rekið af Dvalarheimili aldraðra á suðurnesjum frá árinu 2005 – 2013. Sigríður lauk BS prófi í hjúkrunarfræði árið 2013 frá Háskólanum á Akureyri og starfaði á Garðvangi, þar til Hrafnista tók við rekstrinum. Samhliða starfi sem hjúkrunarfræðingur hjá Dvalarheimilum aldraðra á suðurnesjum starfaði hún við skólahjúkrun í Gerðaskóla árin 2013 -2014. Sigríður hefur starfað á Nesvöllum frá opnum árið 2014, auk þess hefur Sigríður starfað á bráða- og legudeild HSS á sumrin. Sigríður lauk diplóma námi í stjórnun frá Háskólanum á Akureyri í desember 2016.
Við bjóðum Sigríði velkomna í stjórnendahóp Hrafnistu.