Hrafnistu í Reykjanesbæ barst höfðingleg gjöf í vikunni frá Kvenfélagi Keflavíkur - 150,000 kr.
Ákveðið hefur verið að fjárfesta í CRP mælir en slíkt tæki mælir sýkingafactor í blóði sem auðveldar greiningu á sýkingu.
Meðfylgjandi mynd frá afhendingu gjafarinnar þar sem Þuríður Elísdóttir, deildarstjóri á Hrafnistu Nesvöllum (þriðja frá vinstri), veitti gjöfinni viðtöku.