![Sóley Ösp Vilhjálmsdóttir](/images/frettir/2016/Sley-Hrafnista-mynd.jpg)
Sóley Ösp Vilhjálmsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin aðstoðardeildarstjóri á Hrafnistu Kópavogi. Sóley útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HÍ 2008 og hefur starfað við hjúkrun síðan. Hún hefur góða reynslu af öldrunarhjúkrun og hefur bæði starfað á hjúkrunarheimilum hér heima og í Danmörku. Áður en Sóley hóf störf sem hjúkrunarfræðingur á Hrafnistu Kópavogi í mars 2016 starfaði hún á vöknun (12-A) og gjörgæsludeild (12-B) á Landspítalanum.
Við bjóðum Sóley Ösp velkomna í stjórnendahóp Hrafnistu.