María Einarsdóttir, starfsmaður í aðhlynningu á Sólteigi Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár.
Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Dagný Jónsdóttir deildarstjóri á Sólteigi, María, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.