![F.v. Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, ásamt fríðum hóp sem söng og spilaði fyrir heimilisfólk og starfsfólk á Hrafnistu.](https://www.hrafnista.is/images/multithumb_thumbs/b_250_250_16777215_00_images_frettir_2015_jol_a_hrafnistu_tonlistarfolk_crop_Fotor_.jpeg)
Undanfarin ár hefur Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, farið í jólaheimsókn fyrir jólin á allar deildar Hrafnistuheimilanna ásamt fríðu föruneyti sem hefur sungið og spilað jólalög fyrir heimilisfólk, starfsfólk og gesti.
Á meðfylgjandi mynd má sjá föngulegan hóp sem heimsótti allar deildar á Hrafnistuheimilunum í Reykjavík og Reykjanesbæ í gær og í dag ætlar hópurinn að heimsækja heimilin í Hafnarfirði og Kópavogi, syngja, spila og dreifa jólanammi.
Þessum jólaheimsóknum fylgir sannkallaður jólaandi sem allir hafa ánægju og gleði af.