![F.v. Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, Friðbjörg, Jocelyn, Árdís Hulda, forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði og Kristín Benediktsdóttir, ræstingastjóri.](https://www.hrafnista.is/images/multithumb_thumbs/b_250_250_16777215_00_images_frettir_2015_fridbjorg_proppe_10_ara_crop_Fotor.jpeg)
Friðbjörg Proppé, starfsmaður í ræstingu Hrafnistu í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár.
Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd er einnig Jocelyn A. Maglangit, starfsmaður í ræstingu, en hún átti 5 ára starfsafmæli og fékk afhenta gjöf af því tilefni.