![Fv. Sigurbjörg Hannesdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir, Inga Guðrún Sveinsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir og Pétur Magnússon](https://www.hrafnista.is/images/multithumb_thumbs/b_250_250_16777215_00_images_frettir_2015_10ara_dagbjort_gudmundsdottir_crop_Fotor.jpeg)
Dagbjört Guðmundsdóttir, verkstjóri á vinnustofu Hrafnistu í Reykjavík, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sigurbjörg Hannesdóttir deildarstjóri iðjuþjálfunar, Dagbjört Guðmundsdóttir, Inga Guðrún Sveinsdóttir, iðjuþjálfi, en hún átti 3 ára starfsafmæli, Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistuheimilanna.