![Fv. Pétur Magnússon, Bjarney Sigurðardóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Ármann Kr. Ólafsson og Theódóra S. Þorsteinsdóttir.](https://www.hrafnista.is/images/multithumb_thumbs/b_250_250_16777215_00_images_frettir_2015_Undirritun_samnings_HK_sept_2015_Fotor.jpeg)
Nýlega undirrituðu fulltrúar Hrafnistu og Kópavogsbæjar nýjan samning um áframhaldandi samstarf aðilanna í félagsmiðstöðinni Boðanum við Boðaþing í Kópavogi. Hrafnista og Sjómannadagsráð, eigandi Hrafnistuheimilanna, hafa átt í farsælu samstarfi í Boðaþinginu en árið 2010 opnaði þar hjúkrunarheimili sem Hrafnista rekur. Það er sambyggt félags- og þjónustumiðstöð á vegum Kópavogsbæjar sem hóf starfsemi sama ár. Í félags- og þjónustumiðstöðinni er meðal annars að finna fjölbreytt félagsstarf, matsal, dagdvöl fyrir aldraða, sundlaug, hárgreiðslustofu, fótsnyrtistofu og sjúkraþálfun.
Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritunina. Frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Bjarney Sigurðardóttir forstöðumaður Hrafnistu Kópavogi, Guðmundur Hallvarðsson stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og Hrafnistu, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs og Theódóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar.