Vaida Visockaité, starfsmaður á Bylgjuhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Vaida fékk venju samkvæmt afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu af þessu tilefni og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Hildur Dögg Ásgeirsdóttir aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri á Bylgjuhrauni, Vaida, Snædís Lind, sem á 5 ára starfsafmæli um þessar mundir og fékk einnig afhenta starfsafmælisgjöf frá Hrafnistu, og Eyrún Pétursdóttir hjúkrunardeildarstjóri á Bylgjuhrauni.