Afmælishátíð Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði var haldin fimmtudaginn 2. júlí en þá fagnaði heimilið 43. ára afmæli sínu. Af því tilefni var m.a. boðið upp á þjóðarrétt Hrafnistu, kótilettur í raspi með öllu tilheyrandi, í hádeginu. Ragnheiður Gröndal söngkona og Guðmundur Pétursson gítarleikari fluttu nokkur falleg lög við mikinn fögnuð viðstaddra.