Neyðarstjórn Hrafnistu fundaði í gær tengt viðbrögðum vegna hópsýkingar á höfuðborgarsvæðinu af völdum COVID-19 sem barst erlendis frá. Neyðarstjórnin minnir fólk á að ekki megi sofna á verðinum við COVID og vill koma mikilvægum upplýsingum á framfæri til þeirra sem hafa hug á að heimsækja Hrafnistuheimilin:
Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensulík einkenni, s.s. hósta, hita, bein- og vöðvaverki.
Ekki koma í heimsókn ef það eru minna en 14 dagar síðan þú komst erlendis frá (jafnvel þó landamæraskimun hafi verið neikvæð).
Ekki koma í heimsókn ef þú hefur nýlega umgengist aðila í sóttkví eða einangrun vegna COVID.
Vinsamlega haldið heimsóknarfjölda í lágmarki og dveljið inni á íbúð íbúa, gott væri að takmarka fjölda þeirra sem koma í heimsókn hverju sinni við 1-2 einstaklinga.
Kærar þakkir fyrir tillitsemina,
Neyðartjórn Hrafnistu
STOPP - COVID 19 SOFNUM EKKI Á VERÐINUM!