Guðrún María Helgadóttir, sjúkraliði á Báruhrauni Hrafnistu Hraunvangi, hefur starfað á Hrafnistu í 20 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sigurður Garðarsson framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs, Sólborg Tryggvadóttir aðstoðardeildarstjóri á Báruhrauni, Guðrún María og Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi.