Góða gesti bar að í garðinn í sólskinininu á Hrafnistu í Laugarási í dag þegar hópur óperusöngvara kom og heiðraði okkur með nærveru sinni og öflugum söng sem ómaði húsa á milli hér við Laugarásinn. Sönghópurinn kom einnig við á Hrafnistu í Skógarbæ og söng fyrir íbúa og starfsfólk. Við færum þeim hjartans þakkir fyrir komuna.