![anna_maria_bjarnadottir.jpg](/images/frettir/2017/anna_maria_bjarnadottir.jpg)
Anna María Bjarnadóttir sem verið hefur aðstoðardeildarstjóri á Miklatorgi Hrafnistu í Reykjavík undanfarið í afleysingum, hefur formlega tekið við sem aðstoðardeildarstjóri.
Jóna Ósk Ásgerisdóttir, sem verið hefur aðstoðardeildarstjóri á Miklatorgi í Reykjavík, hefur nú að eigin ósk flutt sig yfir í almenn hjúkrunarfræðingsstörf á deildinni. Við þökkum Jónu Ósk Ásgeirsdóttur kærlega fyrir sín stjórnunarstörf í þágu Hrafnistu á síðustu árum og óskum Önnu Maríu velfarnaðar í nýju starfi.