
Um miðjan október hefst þjónustukönnun meðal íbúa og aðstandenda Hrafnistuheimilanna. Markmið könnunarinnar er að fá innsýn í líðan og upplifun íbúa og aðstandenda af þjónustunni, sjá hvað vel er gert og hvar tækifæri eru til umbóta.
Sambærilegar kannanir voru framkvæmdar árin 2022 og 2024 og hafa niðurstöður þeirra verið nýttar markvisst til að þróa og bæta þjónustu Hrafnistu.
Þátttaka íbúa og aðstandenda
Fyrirtækið Prósent annast framkvæmd könnunarinnar. Úrtak verður tekið meðal íbúa Hrafnistuheimilanna og munu spyrlar á vegum Prósents heimsækja þá íbúa sem lenda í úrtakinu og fara með þeim yfir spurningalista.
Aðstandendum verður einnig boðið að taka þátt í könnuninni með því að svara spurningalista sem sendur verður í tölvupósti.
Þátttaka í könnuninni er valfrjáls og öll svör eru meðhöndluð í trúnaði. Niðurstöður verða birtar þannig að ekki verður hægt að rekja svör til einstakra þátttakenda.
Upplifun íbúa og aðstandenda skiptir okkur máli
Við hvetjum íbúa og aðstandendur sem lenda í úrtaki til að taka þátt í könnuninni. Svör þeirra hjálpa okkur að sjá hvað vel er gert og hvar við getum gert enn betur.
Með þátttöku sinni leggja íbúar og aðstandendur sitt af mörkum til að þróa og bæta þjónustu Hrafnistu.
Elva Gísladóttir, verkefnastjóri á gæða- og þróunarsviði
Jakobína H. Árnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs
Gunnur Helgadóttir, forstjóri
