Endurhæfingarteymi Hrafnistu hlýtur styrk úr Tónheilsusjóði STEFs

Nýlega var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum úr Tónheilsusjóði STEFs. Þetta er nýr sjóður sem hefur það markmið að auðvelda aðgengi að tónlist í heilsueflandi skyni.

Sjóðurinn er hugmynd hjónanna Andrésar Arnalds og Guðrúnar Pálmadóttur og stofnframlag sjóðsins kemur frá þeim. Börn þeirra, þau Ólafur, Fríða, Ásdís og Ari hrintu svo þessari góðu hugmynd af stað í samstarfi við STEF.

Alls bárust 39 umsóknir að þessu sinni og voru sjö þeirra samþykktar. Þeirra á meðal var umsókn Endurhæfingarteymis Hrafnistu til kaupa á INMU relax skynörvunartækjum.

Fimm tæki hafa verið keypt og verða til notkunar á Hrafnistu Ísafold, Skógarbæ og Boðaþingi. INMU relax er gagnvirkt  skynörvunartæki sem breytir hreyfingu í róandi tónlist. Tækið framkallar tónlist og titring þegar það er snert og hreyft. Tónlistin breytist eftir því hvernig tækið er hreyft og snert og má því segja að þeir sem nota tækið séu að spila á það með hreyfingum sínum og snertingu. Þetta er áreynslulaust og krefst ekki neinnar ákveðinnar kunnáttu eða færni og hentar því einnig fólki með langt gengna heilabilun. Hver og einn skapar sinn róandi tónlistarheim með snertingu og hreyfingu, jafnvel fólk með miklar hreyfi- og vitrænar skerðingar. Markmiðið er að nota þessa nálgun á þann hátt að tónlist sé nýtt sem virkt meðferðartæki í daglegri umönnun og endurhæfingu, til að bæta líðan og lífsgæði, draga úr kvíða og óróleika og efla tengslamyndun. Það er hægt að nýta þessi tæki á fjölbreyttan hátt en til að byrja með hyggst teymið leggja áherslu á að nota það til að slá á kvíða, óöryggi og óróleika hjá íbúum sem á því þurfa að halda og til notkunar þegar kemur að lífslokum íbúa. INMU relax hefur sýnt jákvæðan árangur í þeim aðstæðum m.a. við að mynda tengsl milli íbúa og ættingja og veita slökun og ró, bæði fyrir íbúa og aðstandendur.

Verkefnið verður leitt af Endurhæfingarteymi Hrafnistu, sem í eru sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar og tómstunda- og félagsmálafræðingur.

Frekari upplýsingar um INMU tækin fá finna á  https://inmutouch.com/

 

Aðrar fréttir

Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.