Gunnur ráðin forstjóri Hrafnistu

Gunnur Helgadóttir hefur verið ráðin forstjóri Hrafnistu. Hún hefur gengt starfinu tímabundið frá lokum júlí en hún starfaði fyrir það sem framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistu.

Gunnur hefur starfað hjá Hrafnistu frá árinu 2020. Þar áður var hún framkvæmdastjóri lyfjafyrirtækisins Vistor í nærri tíu ár. Hún er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BS-próf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Gunnur hefur auk þess víðtæka stjórnunarreynslu og starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur.

„Ég tek við starfinu af mikilli tilhlökkun og metnaði. Hrafnista býr yfir mikilli þekkingu og öflugu starfsfólki. Ég hlakka til að vinna áfram með þessum góða hópi að því að þróa þjónustuna og skapa íbúum okkar öryggi, traust og vellíðan,“ er haft eftir Gunni í tilkynningu.

Hrafnista er stærsti rekstraraðili hjúkrunarheimila á Íslandi og rekur sex hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og eitt á Reykjanesi. Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu þannig að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Hrafnista er óhagnaðardrifið dótturfélag Sjómannadagsráðs og saga starfseminnar nær aftur til ársins 1957 þegar Hrafnista í Laugarási tók til starfa.

Aðrar fréttir

Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.