Endurbætt endurhæfingardeild Hrafnistu í Laugarási formlega opnuð

Endurbættur, glæsilegur og bjartur tækjasalur á Hrafnistu í Laugarási var formlega vígður í gær. Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar, flutti erindi þar sem hún fór yfir starfsemi deildarinnar og þær breytingar og endurbætur sem ráðist hefur verið í. Hún lagði áherslu á mikilvægi hvetjandi starfsfólks og góðs aðbúnaðar í endurhæfingu og þá jákvæðu þróun sem ný aðstaða mun hafa á starfsemina. Nýju tækin eru finnsk HUR tæki frá Fastus. Þau bjóða upp á marga möguleika til að bæta einstaklingsmiðaða þjónustu, fylgjast með framförum og geta tekið út tölulegar staðreyndir um notkun og árangur. Þau eru hljóðlát, notendavæn og hafa reynst mjög vel víða á Íslandi.

Við athöfnina var jafnframt opinberað nýtt nafn á tækjasalnum. Efnt hafði verið til nafnasamkeppni og bárust um 100 tillögur frá bæði íbúum og starfsfólki en salurinn hlaut nafnið Slippurinn.

Séra Daníel Ágúst Gautason, sem jafnframt er starfsmaður á endurhæfingardeildinni,  vígði salinn og blessaði starfsemina með hlýjum orðum og góðum óskum um farsæla starfsemi til framtíðar.

Að lokinni vígslu var klippt á borða. Aðstoðardeildarstjórar endurhæfingardeildar, þær Jóhanna Björk Viktorsdóttir og Ásdís Ármannsdóttir héldu í borðann á meðan Gígja Þórðardóttir deildarstjóri, Emilía Brynja Sveinsdóttir, sem starfað hefur á endurhæfingardeildinni til fjölda  ára, og Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Laugarási klipptu á borðann.

Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, flutti einnig erindi við athöfnina. Hann ræddi meðal annars mikilvægi þeirrar þjónustu sem veitt er á Hrafnistu og þann mikla ávinning sem felst í öflugri endurhæfingu eldri borgara.

Opnunin markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og eflingu þjónustu á Hrafnistu í Laugarási. Með endurbættum aðbúnaði og tækjum skapast enn betri aðstæður fyrir endurhæfingu  þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar.

 

 

 

 

Aðrar fréttir

Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.