
Það var heldur betur glatt á hjalla 21. apríl þegar íbúar og starfsfólk á Hrafnistu Hraunvangi gerðu sér glaðan dag í tilefni þess að 100 ár voru liðin frá fæðingu Elísabetar Bretadrottningar. Veitingar voru í konunglegum anda, boðið var upp á Afternoon tea og skálað var í freyðivíni.
Gestir mættu í sínu fínasta pússi og margir skörtuðu hatti í anda drottningarinnar. Starfsmenn lögðust á eitt við að gera stundina sem glæsilegasta og lögðu til falleg stell, dúka og skrautmuni.
Albert Eiríksson frá Hinu íslenska Royalistafélagi flutti ávarp og Guðrún Gunnarsdóttir gladdi viðstadda með fallegum söng.
