Jólafjölskyldustund haldin á Hrafnistu Skógarbæ
Mikið var um dýrðir og fjöldi aðstandenda kíktu við þegar haldin var jólafjölskyldustund fyrir íbúa á Hrafnistu Skógarbæ sl. föstudag.
Mikið var um dýrðir og fjöldi aðstandenda kíktu við þegar haldin var jólafjölskyldustund fyrir íbúa á Hrafnistu Skógarbæ sl. föstudag.
Í dag fór fram hin árlega sherrý stund sjúkraþjálfunar á Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði. Stundin var haldin þetta árið í Menningarsalnum og var fullt út að dyrum. Boðið var uppá sherrý og konfekt undir ljúfum tónum frá Guðrúnu Árnýju söngkonu og þökkum við henni vel fyrir skemmtunina.
Lydia Surban Cabritit, starfsmaður í ræstingu á Hrafnistu Laugarási, hefur starfað á Hrafnistu í 10 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu, Lydia, Auður Björk Bragadóttir deildarstjóri ræstingar og Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Laugarási. Með þeim á myndinni er Piotr Stefan Kopa sem átti 5 ára starfsafmæli og fékk einnig afhenta tilheyrandi starfsafmælisgjöf af því tilefni.
Rebekkustúkan Eldey hefur heiðrað íbúa Hlévangs á Hrafnistu í Reykjanesbæ með mánaðarlegum heimsóknum í vetur. Í gær kom fjöldi vaskra kvenna og bauð íbúunum upp á nýbakaðar vöfflur með rjóma, heitt súkkulaði, konfekt og sörur. Þegar allir voru búnir að næra sig voru þær með jólabingó. Þessi vinskapur er ómetanlegur og við erum svo þakklát þessum yndislegu konum. Þetta er sannkallaður gæðatími sem þær gefa íbúunum okkar. Kærleikskveðjur frá öllum á Hlévangi.
Regina Markeviciene, starfsmaður í býtibúri á Sólteig/Mánateig Hrafnistu Laugarási, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Laugarási, Regina og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.
Sameinuð hefur verið deildarstjórastaða borðsals og ræstingar á Hrafnistu í Laugarási og hefur Auður Björk Bragadóttir, núverandi deildarstjóri ræstingar á Hrafnistu í Laugarási, verið ráðin deildarstjóri í nýja sameinaða deild. Hún mun taka við stöðunni 2. janúar 2020. Við óskum henni velfarnaðar í nýju og breyttu starfi og þökkum jafnframt Sigrúnu Kjærnested, fráfarandi deildarstjóra borðsals í Laugarási, kærlega fyrir samstarfið en hún flytur sig um set og mun taka við sem deildarstjóri borðsals á nýju heimili Hrafnistu við Sléttuveg.
Meðfylgjandi myndir voru teknar sl. föstudag þegar Hrafnista bauð starfsfólki sínu í Laugarási, Ísafold og Skógarbæ upp á purusteik með öllu tilheyrandi í hádeginu. Margar skemmtilegar hefðir fylgja þessum degi þar sem deildir hafa t.d. aðventukaffi, litlu-jól og fleira.
Hrafnista bauð starfsfólki sínu í Laugarási, Boðaþingi og í Skógarbæ á jólaball í dag. Jólaballið var haldið á Hrafnistu í Laugarási og mættu um 120 manns á ballið. Ævintýrapersónur úr Leikhópnum Lottu sáu um skemmtiatriði fyrir börnin og að sjálfsögðu var svo dansað í kringum jólatréð. Jólasveinar kíktu líka í heimsókn, dönsuðu og sungu og færðu börnunum glaðning í lokin.
Eldeyjarkórinn flutti jólalög í sal þjónustumiðstöðvarinnar á Nesvöllum í dag. Fallegur flutningur og notaleg samverustund. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
Síða 57 af 176