
Á þessum hátíðisdegi sendum við hjá Hrafnistuheimilunum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra okkar bestu hamingjuóskir með daginn.
Saga Hrafnistu er órjúfanlega tengd íslenskum sjómönnum. Við minnumst þess með þakklæti og virðingu að íslenskir sjómenn reistu fyrstu heimili Hrafnistu og lögðu þar með grunninn að öflugu samfélagslegu verkefni sem hefur um áratugaskeið stuðlað að velferð og öryggi eldri borgara. Framlag sjómanna, þáttur þeirra í sögu Hrafnistu og því mikilvæga starfi sem Hrafnista sinnir enn í dag, verður ávallt í heiðri hafður.
Á sjómannadaginn heiðrum við framlag sjómanna til íslensks samfélags fyrr og síðar. Við þökkum þeim fyrir störf þeirra, þrautseigju og þann styrk sem hefur byggt upp þjóðina og skapað komandi kynslóðum tækifæri.
Megi sjómannadagurinn verða öllum gleðiríkur og ánægjulegur.
Með virðingu og þakklæti,
Hrafnistuheimilin
