Sjúkraþjálfari í endurhæfingardeild – Hrafnista Laugarási

Sjúkraþjálfari í endurhæfingardeild – Hrafnista Laugarási

Langar þig að taka þátt í að þróa og móta framtíð endurhæfingarþjónustu fyrir eldra fólk? Vilt þú styðja fólk til að viðhalda færni sinni og lífsgæðum sem lengst?

Hrafnista Laugarási leitar að metnaðarfullum sjúkraþjálfara til starfa á nýrri og framsækinni endurhæfingardeild þar sem dagendurhæfing er í örum vexti og gegnir lykilhlutverki í þjónustunni.

Við erum að byggja upp öflugt og samþætt þverfaglegt teymi sem vinnur að því að efla færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklinga. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni bæði með íbúum Hrafnistu og þjónustuþegum dagendurhæfingar, þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða meðferð, virka þátttöku og árangursríka endurhæfingu.

Á deildinni starfa sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, íþróttafræðingar og aðstoðarfólk í nánu samstarfi. Hér færð þú einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustunnar, koma að nýsköpun í starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, samvinnu og metnaði. Deildin býr yfir nýjum tækjasal og góðri aðstöðu til meðferðar og þjálfunar. Einnig er möguleiki á þátttöku í göngudeildarþjónustu.

Um er að ræða 70-100% starf.

Hjá okkur færð þú:

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á mótun og þróun þjónustu
  • Sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi
  • Öflugt þverfaglegt samstarf þar sem fagþekking allra nýtist
  • Vettvang til að þróa eigin styrkleika og fagmennsku
  • Góða starfsaðstöðu og nýjan tækjasal
  • Sterka liðsheild þar sem áhersla er lögð á stuðning, þróun og vellíðan starfsfólks

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining, endurhæfing, þjálfunaráætlanir og skráning
  • Skipulagning endurhæfingar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar
  • Ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
  • Fræðsla fyrir þjónustuþega og starfsfólk
  • Teymisvinna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Landlæknisembættinu
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni
  • Faglegur metnaður
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi

Dagendurhæfing gegnir lykilhlutverki í því að styðja einstaklinga til aukins sjálfstæðis, virkni og lífsgæða. Á Hrafnistu leggjum við áherslu á að mæta hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur og skapa tækifæri til framfara með markvissri, persónumiðaðri og þverfaglegri nálgun.

Ef þú hefur áhuga á að starfa í umhverfi þar sem fagmennska, þróun, nýsköpun og velferð þjónustuþega eru í forgrunni, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –

Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.

Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Nánari upplýsingar veitir Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar (gigja.thordardottir@hrafnista.is)

Umsóknarfrestur: 11.11.2026
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Laugarás

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri – Skógarbær

Hrafnista Skógarbæ óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 80-100% starf.  Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun? Þá ...
Umsóknarfrestur: 28.10.2026
Staðsetning: Hrafnista Skógarbær

Iðjuþjálfi – Hrafnista Hraunvangi

Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða til sín iðjuþjálfa í endurhæfingardeild. Starfshlutfall er 80 – 100% Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar...
Staðsetning: Hrafnista Hraunvangur
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.