Iðjuþjálfi – Hrafnista Hraunvangi

Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða til sín iðjuþjálfa í endurhæfingardeild.

Starfshlutfall er 80 – 100%.

Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni.

Um er að ræða spennandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu.

Á Hrafnistu leitast iðjuþjálfar við að starfa einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á hverju sinni. Þannig hefur þátttakan jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
  • Meta færni, veita færniþjálfun og ráðgjöf
  • Skráning og skýrslugerð
  • Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks iðjuþjálfa á deild
  • Fræðsla og hópastarf til íbúa og aðstandenda
  • Þátttaka í hópastarfi
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
  • Þátttaka í fagþróun

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námsstyrkja.
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Frekari upplýsingar um starfið veita deildarstjórar endurhæfingardeildar:

Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir, iðjuþjálfi – maren.sveinbjornsdottir@hrafnista.is

Íris Huld Hákonardóttir, sjúkraþjálfari – iris.hakonardottir@hrafnista.is

Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Hraunvangur

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri – Skógarbær

Hrafnista Skógarbæ óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 80-100% starf.  Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun? Þá ...
Umsóknarfrestur: 28.10.2026
Staðsetning: Hrafnista Skógarbær
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.