Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Hrafnista leitar að reynslumiklum hjúkrunarfræðingi sem hefur brennandi áhuga á faglegri þróun, gæðum og umbótum í þjónustu við íbúa hjúkrunarheimila. Sérfræðingurinn starfar á Gæða- og þróunarsviði Hrafnistu sem er stoðsvið fyrir sjö hjúkrunarheimili. Hlutverk sviðsins er að leiða faglega þróun, innleiða nýtt vinnulag og efla gæði þjónustunnar með það að markmiði að tryggja samræmd og fagleg vinnubrögð á öllum heimilum. Á sviðinu starfa 15 sérfræðingar með ólíka fagþekkingu.
Starfið felur í sér að leiða og styðja við þróunar- og umbótaverkefni, miðla fagþekkingu og vinna náið með stjórnendum og starfsfólki að innleiðingu breytinga og eflingu þjónustunnar. Við leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður, lausnamiðaður og hefur sterka leiðtogahæfileika, góða samskiptahæfni og getu til að skapa áhuga og fá fólk með sér í breytingar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfnikröfur
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan.
Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áhersla er lögð á umbætur og þróun öldrunarþjónustu þar sem nýting tækni er í brennidepli viljum við endilega heyra frá þér.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Auður Böðvarsdóttir, mannauðsráðgjafi á Hrafnistu (audur.bodvarsdottir@hrafnista.is).
