Hjúkrunarfræðingur – Hrafnista Boðaþingi

Vilt þú vinna með okkur að því markmiði að vera leiðandi í umönnun og þjónustu við aldraða?

Ert þú hjúkrunarfræðingur í leit að nýju starfstækifæri og vilt vinna á fjölskylduvænum vinnustað þar sem stuðlað er að þróun starfsfólks?

Þá viljum við endilega heyra frá þér. 

Hrafnista Boðaþingi óskar eftir að ráða til sín hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi verkefni. 

Starfshlutfall er samkomulagsatriði en mikilvægt er að viðkomandi geti tekið helgar- og kvöldvaktir í bland við dagvaktir. Kostur er ef viðkomandi getur verið í háu starfshlutfalli, en ekki skilyrði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta æskileg
  • Þekking á RAI mælitækinu er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð yfirsýn og skipulagshæfni

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Hrafnista Boðaþingi opnaði nýlega nýja og glæsilega deild þar sem 64 íbúar búa. Nú búa því 108 íbúar á heimilinu.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.  

Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. 

Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ólafsdóttir mannauðsráðgjafi (signy.olafsdottir@hrafnista.is)

Umsóknarfrestur: 20.07.2026
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Starfsmaður í dagdvöl – Hrafnista Ísafold

Hrafnista Ísafold í Garðabæ óskar eftir að ráða til sín starfskraft í afleysingu í dagdvöl á meðan fæðingarorlofi stendur. Um 60% starf er að ræða frá ágúst/september. Markmið dagdvalar er að viðhalda...
Umsóknarfrestur: 09.07.2026
Staðsetning: Hrafnista Ísafold

Hjúkrunarnemi – hlutastarf með skóla í haust

Hrafnista á Sléttuvegi óska eftir að ráða til sín hjúkrunarnema eða sjúkraliða í hlutastarf með skóla í haust. Nemar sem lokið hafa lyfjafræði geta tekið hjúkrunarvaktir undir leiðsögn hjúkrunarfræðin...
Umsóknarfrestur: 12.07.2026
Staðsetning: Hrafnista

Umönnun framtíðarstarf – Ísafold

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starfstækifæri? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Hrafnista Ísafol...
Umsóknarfrestur: 20.07.2026
Staðsetning: Hrafnista Ísafold

Umönnun framtíðarstarf – Boðaþing

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starfstækifæri? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Hrafnista Boðaþi...
Umsóknarfrestur: 20.07.2026
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Iðjuþjálfi – Hrafnista Hraunvangi

Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í endurhæfingardeild. Um er að ræða spennandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu. Starfs...
Umsóknarfrestur: 22.07.2026
Staðsetning: Hrafnista Hraunvangur
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.