Símalaus heimili Hrafnistu

Hrafnista er heimili einstaklinga þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt, heimilislegt og öruggt umhverfi. Hugmyndafræði Hrafnistu er hjartað í starfseminni en samhliða henni er unnið markvisst að ákveðnum verkefnum þvert á öll Hrafnistuheimilin sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

Haustið 2025 var tekin ákvörðun um að gera Hrafnistu að símalausu heimili frá og með febrúar 2026. Ákvörðunin var ekki tekin af tilviljun, heldur byggði hún á skýrum vísbendingum um að símanotkun starfsfólks væri farin að hafa neikvæð áhrif á þjónustuna. Þetta kom fram bæði í niðurstöðum þjónustukönnunar, í samtölum við íbúa og aðstandendur og í vinnustaðagreiningum. Með því að draga úr símanotkun skapast meira rými fyrir það sem skiptir mestu máli – mannleg tengsl, hlustun og faglega umönnun.

Verkefnið Símalaus heimili hófst með greiningu á niðurstöðum þjónustukönnunar þar sem kom fram að einkasímanotkun starfsfólks á vinnutíma hafði neikvæð áhrif á íbúa og aðstandendur. Til að bregðast við var stofnaður vinnuhópur og send út könnun til starfsfólks um símanotkun. Niðurstöður leiddu í ljós óánægju meðal starfsfólks varðandi símanotkun samstarfsfólks og lögðu grunninn að víðtækari breytingum.

Rýnihópar með starfsfólki úr ólíkum hlutverkum greindu daglegt vinnuflæði, áskoranir og mögulegar lausnir og í framhaldi komu stjórnendur allra heimila saman til að ræða framkvæmd. Á grundvelli þess var ákveðið að setja skýrar vinnureglur um einkasímanotkun á svæðum þar sem þjónustuþegar dvelja, svo sem á hjúkrunardeildum, göngum og í matsölum. Til að mæta persónulegum þörfum starfsfólks eru skilgreind sérstök svæði „Höfnin“ þar sem starfsfólk getur sest niður og tekið mikilvæg persónuleg samtöl.

Þjónustukönnunin vakti jafnframt athygli á einmanaleika og minni félagslegri virkni meðal íbúa. Verkefnahópur um félagslega virkni var því stofnaður og hefur þróað og hafið innleiðingu fjölbreyttra úrræða á öllum heimilum Hrafnistu til að auka félagslega virkni. Meðal aðgerða er aukin fræðsla til starfsfólks um mikilvægi félagslegra þarfa, helgardagskrá á öllum deildum Hrafnistu, betri uppröðun við matarborð til að styðja samtöl og tengsl íbúa, fjölgun virknifulltrúa, bætt miðlun upplýsinga um íbúa t.d. með gerð svokallaðra Hjartablaða og lífssögu, endurbætur á virknivögnum og þjálfun starfsfólks í samskiptum og samveru við íbúa. Jafnframt voru þróuð samskiptaspil til að styðja við spjall, tengsl og aukna félagslega virkni íbúa. Samskiptaspilin eru hluti af meistararannsókn í Hagnýtri atferlisgreiningu við Háskólann í Reykjavík, sem Sara Dögg Ólafsdóttir framkvæmdi í samstarfi við Hrafnistu. Í rannsókninni var skoðað hvernig markviss þjálfun starfsfólks hefur áhrif á samskipti við íbúa. Með aðferð sem kallast „Teach-Back“ jókst bæði tíðni og gæði samskipta umfram grunnþarfir og niðurstöður bentu til jákvæðra áhrifa á lífsgæði og upplifun íbúa.

Samskiptaspilin eru hugsuð sem einfalt og aðgengilegt hjálpartæki til að hefja samtöl og skapa fleiri tækifæri til samskipta í daglegu starfi. Þau innihalda fjóra flokka spurninga þar sem hver spurning samanstendur af upphafsspurningu og framhaldsspurningu sem styður við dýpri og innihaldsríkari samskipti. Starfsfólk er hvatt til að nýta spilin á sveigjanlegan hátt, spinna í kringum spurningarnar og aðlaga þær að aðstæðum hverju sinni, þannig að samskiptin verði bæði eðlileg og persónuleg.

Í samhengi við verkefnið Símalaus heimili gegna verkefni tengt félagslegri virkni eins og spilin mikilvægu hlutverki sem hagnýtt úrræði sem styður við æskilega hegðun í starfi, geta auðveldað starfsfólki að hefja samskipti, nýta augnablik til að kynnast íbúum betur og vera til staðar. Þar með er ekki aðeins verið að draga úr símanotkun, heldur jafnframt verið að auka hegðun sem hefur jákvæð áhrif á upplifun og lífsgæði.

Í verkefninu um Símalaus heimili fengum við innblástur frá „Líttupp“ átaki Netvís og voru tekin upp myndbönd sem voru ætluð sem hugvekja um hvernig íbúar og aðstandendur geta upplifað einkasímanotkun starfsfólks. Myndböndin sýndu einnig frá því hversu frábærar stundirnar með íbúum, starfsfólki og aðstandendum geta verið þegar allir eru „á staðnum“. Við fengum frábært starfsfólk til að leika í myndböndunum og voru þau birt á innri samskiptamiðli fyrirtækisins ásamt fleiri færslum sem var ætlað að vekja starfsfólk til umhugsunar um símanotkun innan sem utan vinnustaðarins. Auk þessa var Netvís með fræðslu til starfsfólks um áhrif símanotkunar á ýmsa anga lífsins.

Saman stuðla þessar breytingar að því að draga úr ónauðsynlegri símanotkun á vinnutíma og auka til muna nærveru, samtal og lífsgæði íbúa. Verkefnið sýnir hvernig skýr stefna, fræðsla og einföld hjálpargögn geta skapað hlýlegt og öruggt umhverfi fyrir alla.

 

Á meðfylgjandi mynd er vinnuhópurinn sem leiddi verkefnið Símalaus heimili: F.v. Signý Arnórsdóttir mannauðsráðgjafi, Lilja Harðardóttir mannauðsráðgjafi, Signý Ólafdóttir verkefnastjóri og Jóhanna Gilsdóttir atferlisfræðingur.

 

 

Aðrar fréttir

Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.