
Jónas Heiðar Birgisson hefur verið ráðinn sem fjármálastjóri Sjómannadagsráðs en undir ráðið heyra Hrafnistuheimilin, DAS íbúðir, og Happdrætti Das.
Jónas Heiðar tekur við starfinu af Kristjáni Björgvinssyni, sem hefur gengt lykilhlutverki hjá félaginu um árabil og starfað þar í 8 ár. Eftir farsælan feril og mikilvægt framlag til uppbyggingar og þróunar Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og tengdra félaga, hefur Kristján ákveðið að láta af störfum á næstu vikum.
Jónas Heiðar býr yfir víðtækri reynslu á sviði fjármála og rekstrar. Hann starfaði hjá Arnarlaxi ehf. sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá fyrirtækinu þar sem hann tók virkan þátt í uppbyggingu félagsins frá 2017.
Þar áður starfaði Jónas á fjármálasviði Norðuráls en Jónas lauk viðskiptafræðinámi frá Háskólanum á Bifröst árið 2005.
Aríel Pétursson formaður Sjómannadagsráðs
,,Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Jónas til liðs við okkur. Umsvif samstæðunnar eru mikil og framundan eru stór verkefni við áframhaldandi uppbyggingu hjúkrunarrýma og þjónustuíbúða fyrir eldri borgara. Við stjórnin þökkum Kristjáni fyrir góð og farsæl störf á sínum árum en hann hefur haft fram að færa mikilvægt framlag í gegnum tíðina.“
Sjómannadagsráð er leiðandi afl í öldrunarþjónustu á Íslandi, og undir það heyra Hrafnista sem er stærsti rekstraraðili hjúkrunarheimila á Íslandi og rekur sex hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og eitt á Reykjanesi. Að auki rekur Sjómannadagsráð DAS-íbúðir, leigufélag eldri borgara, með 350 íbúðum í útleigu í lífsgæðakjörnum. Fjárhagslegur bakhjarl samstæðunnar til ríflega sjö áratuga er Happdrætti D.A.S. sem einnig er í eigu Sjómannadagsráðs.
