Elín Hrönn ráðin forstöðumaður Hrafnistu Skógarbæ

Elín Hrönn Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Hrafnistu í Skógarbæ.

Elín er hjúkrunarfræðingur að mennt með MBA-gráðu og býr hún yfir 20 ára reynslu af stjórnun, rekstri og þróunarverkefnum innan heilbrigðis- og lyfjageirans. Á starfsferli sínum hefur hún gegnt fjölbreyttum stjórnunarhlutverkum þar sem áhersla hefur verið lögð á gæði, öryggi, umbætur og eflingu starfsfólks.

Meðal annars starfaði Elín sem forstöðumaður Maríuhúss hjá Alzheimer-samtökunum þar sem hún bar ábyrgð á daglegum rekstri, faglegri stjórnun og þjónustu við skjólstæðinga og aðstandendur. Elín hefur einnig víðtæka reynslu af rekstri og gæða- og umbótastarfi úr störfum sínum hjá Vistor og Icepharma. Þá hefur hún stýrt alþjóðlegu samstarfsverkefni á vegum Embættis landlæknis sem tengist viðbúnaði og öryggi í heilbrigðisþjónustu.

Við hlökkum til að njóta reynslu, þekkingar og leiðtogahæfileika Elínar í áframhaldandi þróun og eflingu starfseminnar í Skógarbæ og bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.

Aðrar fréttir

Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.