Sjúkraliði – Nesvellir í Reykjanesbæ

Hrafnista Nesvellir óskar eftir að ráða samviskusaman, hlýjan og skipulagðan sjúkraliða til starfa. Um 70-100% starf er að ræða. Við leitum að aðila sem getur tekið allar tegundir vakta og er tilbúin að taka að sér vaktstjórn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn sjúkraliðastörf
  • Verkstjórn deildar
  • Teymisvinna
  • Umsjón með umönnun íbúa 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sjúkraliða
  • Þekking á RAI kerfinu kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
  • Sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og metnaður í starfi

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur með strætó
  • Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
  • Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.

Athugið að unnið verður úr auglýsingum jafnóðum.

Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.

Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.

– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –

Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.

Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.

Allar nánari upplýsingar veitir Þuríður Ingibjörg Elísdóttir (thuridur.elisdottir@hrafnista.is)

Umsóknarfrestur: 09.12.2026
Tegund: Fullt starf
Staðsetning: Hrafnista Nesvellir

Iðjuþjálfi – Hrafnista Hraunvangi

Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða til sín iðjuþjálfa í endurhæfingardeild. Starfshlutfall er 80 – 100% Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar...
Umsóknarfrestur: 27.11.2026
Staðsetning: Hrafnista Hraunvangur

Sjúkraliði í dagdvöl – Boðaþing

Hrafnista Boðaþingi óskar eftir að ráða öflugan sjúkraliða í 80% starf í almenna dagdvöl. Dagdvöl sinnir einstaklingum sem búa á eigin heimili en þurfa stuðning, félagslega virkni og skipulagða dagþjó...
Umsóknarfrestur: 30.11.2026
Staðsetning: Hrafnista Boðaþing

Umönnun framtíðarstarf – Nesvellir í Reykjanesbæ

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starfstækifæri? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni? Hrafnista Nesvöl...
Umsóknarfrestur: 06.12.2026
Staðsetning: Hrafnista Nesvellir
Meginmarkmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar, aðrir þjónustuþegar og aðstandendur upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir því hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa fyrir þjónustuþega, íbúa, aðstandendur og starfsfólk.

Nafn á þjónustu

Vivamus sagittis lacus vel augue laoreet rutrum faucibus dolor auctor. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Sed posuere consectetur est at lobortis.

Curabitur blandit tempus porttitor. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Integer posuere erat a ante venenatis dapibus posuere velit aliquet. Aenean eu leo quam. Pellentesque ornare sem lacinia quam venenatis vestibulum.

Maecenas faucibus mollis interdum. Aenean lacinia bibendum nulla sed consectetur. Donec ullamcorper nulla non metus auctor fringilla. Cras mattis consectetur purus sit amet fermentum. Fusce dapibus, tellus ac cursus commodo, tortor mauris condimentum nibh, ut fermentum massa justo sit amet risus. Cum sociis natoque penatibus et magnis dis parturient montes, nascetur ridiculus mus. Maecenas faucibus mollis interdum.