Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Sjúkraþjálfari í endurhæfingardeild – Hrafnista Laugarási
Langar þig að taka þátt í að þróa og móta framtíð endurhæfingarþjónustu fyrir eldra fólk? Vilt þú styðja fólk til að viðhalda færni sinni og lífsgæðum sem lengst?
Hrafnista Laugarási leitar að metnaðarfullum sjúkraþjálfara til starfa á nýrri og framsækinni endurhæfingardeild þar sem dagendurhæfing er í örum vexti og gegnir lykilhlutverki í þjónustunni.
Við erum að byggja upp öflugt og samþætt þverfaglegt teymi sem vinnur að því að efla færni, sjálfstæði og lífsgæði einstaklinga. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni bæði með íbúum Hrafnistu og þjónustuþegum dagendurhæfingar, þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða meðferð, virka þátttöku og árangursríka endurhæfingu.
Á deildinni starfa sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, íþróttafræðingar og aðstoðarfólk í nánu samstarfi. Hér færð þú einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustunnar, koma að nýsköpun í starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, samvinnu og metnaði. Deildin býr yfir nýjum tækjasal og góðri aðstöðu til meðferðar og þjálfunar. Einnig er möguleiki á þátttöku í göngudeildarþjónustu.
Um er að ræða 70-100% starf.
Hjá okkur færð þú:
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Dagendurhæfing gegnir lykilhlutverki í því að styðja einstaklinga til aukins sjálfstæðis, virkni og lífsgæða. Á Hrafnistu leggjum við áherslu á að mæta hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur og skapa tækifæri til framfara með markvissri, persónumiðaðri og þverfaglegri nálgun.
Ef þú hefur áhuga á að starfa í umhverfi þar sem fagmennska, þróun, nýsköpun og velferð þjónustuþega eru í forgrunni, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Hrafnista er símalaust heimili. Með símalausum heimilum leggjum við áherslu á aukið öryggi og bætta þjónustu við íbúa, aðstandendur og aðra þjónustuþega.
Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Nánari upplýsingar veitir Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar (gigja.thordardottir@hrafnista.is)
