
Nýr tæknivæddur starfsfélagi hefur hafið störf í þjónustumiðstöðinni Sléttunni á Hrafnistu Sléttuvegi, en um er að ræða vélmenni sem hlotið hefur nafnið Stefnir. Vélmennið léttir undir með starfsfólki þegar leirtau er tekið af borðum í matsalnum og flytur það í uppvaskið. Markmiðið með tilkomu vélmennisins er að styðja við daglegan rekstur, auka skilvirkni og létta á starfsfólki. Með því gefst starfsfólki meira svigrúm til að sinna þeim verkefnum sem skipta mestu máli í þjónustu við íbúa og gesti.
Stefnir ferðast sjálfstætt um eftir fyrir fram skilgreindum leiðum og notar skynjara til að greina umhverfi sitt og forðast hindranir. Vélmennið vinnur þannig örugglega samhliða starfsfólki, íbúum og gestum þjónustumiðstöðvarinnar.
Reynslan af Stefni hefur verið jákvæð og vekur hann jafnan athygli og forvitni þeirra sem á vegi hans verða.
Hjá Hrafnistu er lögð áhersla á að nýta nýsköpun og tæknilausnir þar sem þær geta bætt þjónustu og vinnuumhverfi. Stefnir er gott dæmi um hvernig tæknin getur orðið verðmætur liðsauki í daglegu starfi.
Við bjóðum vélmennið Stefni velkomin til starfa á Sléttunni og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Fjallað var um vélmennið í kvöldfréttum RÚV
Myndina við þessa frétt tók Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður á RÚV. Sjá nánari umfjöllun á ruv.is
