
Þær Jóhanna Gilsdóttir atferlisfræðingur á Hrafnistu og Sara Dögg Ólafsdóttir atferlisfræðingur í búsetuúrræðinu Heilindi, voru í viðtali á Bylgjunni í morgun. Þar sögðu þær frá spilinu Endurminningar en spilið er hluti af meistararannsókn í Hagnýtri atferlisgreiningu við Háskólann í Reykjavík sem Sara Dögg Ólafsdóttir framkvæmdi í samstarfi við Hrafnistu.
