
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands og framkvæmdastjóri lækninga á Hrafnistu, var á dögunum kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna, World Medical Association (WMA), á ársfundi samtakanna í Rotterdam í Hollandi.
Steinunn var kjörin með 97,81% atkvæða og tekur við embættinu í október 2027 og mun gegna því tímabilið 2027-2028. Hún verður annar Íslendingurinn til að gegna þessu hlutverki en Jón Snædal gegndi embættinu á árunum 2007-2008.
