Almenn umsókn
Viltu starfa hjá Hrafnistu en sérð ekki auglýst starf sem hentar þér?
Sæktu þá um hér.
Stærsta hjúkrunarheimili landsins óskar eftir að ráða til sín hjúkrunardeildarstjóra til starfa. Deildarstjóri er leiðtogi í hjúkrun og þjónustu við íbúa og stjórnandi mannauðs á deildinni. Deildarstjóri fer með allan daglegan rekstur á 45 íbúa hjúkrunardeild. Á deildinni starfa um 85 manns. Á Hrafnistu Hraunvangi eru fjórar hjúkrunardeildar og stjórnendur deildanna starfa náið saman ásamt forstöðumanni.
Deildarstjóri er hluti af stjórnendahópi Hrafnistu
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar –
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslurnar eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Allar frekari upplýsingar veitir Hjördís Ósk Hjartardóttir, forstöðumaður Hrafnistu Hraunvangi (hjordis.hjartardottir@hrafnista.is).
